Ákvað að setja inn smá grein um það hvernig gott er að rækta show guppy fiska á áhrifamikinn
hátt...grein þessi er þýdd af nokkrum greinum sem að ég hef lesið mig til um á netinu ásamt öðrum upplýsingum sem að ég hef
sankað að mér. Í þessari grein stikla ég á stóru og fer mjög takmarkað í “fræðin” en kem þessu vonandi á einfaldan
hátt frá mér.
Langar þig að rækta stóra fallega “show guppy” ? Til
þess þarftu mikla þolinmæði og aga. Það sem skiptir mestu máli er að byrja rækta fiska undan góðum guppy “ræktunar stofni” – stofni sem að eru sömu “týpur” þ.e.a.s bæði kallinn og kerlingin.
Þetta eru stofnar sem hægt er að nálgast erlendis en einnig eru nokkrir aðilar hérna á klakanum sem að eru að rækta
flotta guppy og hjá þeim væri kannski möguleiki á að fá réttu fiskana ???
Byrjaðu á því að ákveða litinn á fiskunum
sem að þig langar að rækta. Með u.þ.b. sex til átta lítil fiskabúr (10 lítra – 20 lítra og 40 lítra) ættir þú að geta
ræktað flotta gæða“show guppy” þ.e.a.s einn lit.
Settu fyrsta stofninn þinn í t.d. 20 lítra búr og hafðu
þá þar, þar til að fyrsta kellan er tilbúin í að gjóta. Færðu þá þá kerlingu í sérstakt gotbúr og láttu hana gjóta þar.
Eftir
að fyrstu seiðin eru komin (í 10 l búri) gefðu þeim þá oft að borða á hverjum degi, allt að því sex sinnum á dag er gott mál.
Gefðu þeim gæða fæði, þ.e.a.s. artemíu og fínmalað gæða fiskafóður. Eftir u.þ.b. þrjár vikur er gott að færa seiðin í stærra
búr c.a. 20 lítra og halda áfram að gefa þeim oft á dag. Þú þarft að þrífa skítinn og þann mat sem ekki er borðaður af botni
búrsins á 2-4 daga fresti. Skiptu um vatn í búrunum 1-2 í viku - 35-60 %.
Taktu öll seiði sem að vaxa hægt og öll
seiði sem að eru ekki með rétta formið og hentu þeim eða settu í eitthvað annað búr þar sem að þú getur alið þau upp og séð
hvað verður úr þeim.
Eftir um tvo mánuði áttu að hafa fiskana í stærra búri c.a. 40 lítra og ekki hafa fleiri en 12-15
fiska í hverju 40 lítra búri. Hafðu kalla og nokkrar kellur saman í hverju búri.
Eftir um þrjá mánuði getur þú svo
valið fiska sem að þú heldur áfram að rækta undan.
Einfaldar reglur til þess að fara
eftir eru:•
Góður ræktunarstofn til þess að byrja með • Artemía sem fóður • Gæða
fínmalað fiskafóður • Ör vatnaskipti • Losa sig við “lélegu” fiskana
Ef þessu er fylgt
ættir þú að geta ræktað flotta show guppy.....
Vonandi hjálpar þetta einhverju þarna úti sem að er að fikra sig áfram
í guppyrækt...
Þetta er í raun kallað show guppy þar sem að erlendis eru haldnar sýningar og keppnir í guppyrækt....og
þangað komast bara fallegustu og bestu fiskarnir....og hljóta þaðan nafnið SHOW GUPPY.
|